Ég er Axel Pétur Axelsson

Ég segi hlutina eins og ég sé þá – umbúðalaust, stundum óþægilega, en alltaf af heilindum. Á ferli mínum í gegnum hönnun, tækni, stjórnmál og skrif hef ég helgað mig því að fletta ofan af sannleikanum. Ég skrifa til að átta mig á heiminum og deili minni sýn með þeim sem vilja lesa. Ég mun aldrei láta af því að efast og spyrja.

Forsetaframboð 2024

Ég býð mig fram til forseta Íslands til að endurvekja hugsjónir Vikinga sem vildu lifa í friði með sig og sína. Vikingar færðu sig því oft undan ofríki ofbeldismanna (valdstjórna) sem töldu sig með einkaumboð æðri afla og/eða lýstu sig sem konunga yfir öðru fólki með álíka vafasömum rökum.

Um Axel Pétur Axelsson

Axel Pétur Axelsson kemur úr Kópavoginum og er nú búsettur í Uddeholm, Svíþjóð, þar sem hann er kvæntur Tigist Wolde Werdofa og eiga þau fimm börn saman. Að auki á Axel Pétur eitt uppkomið barn úr fyrra sambandi.

Hægt er að leggja framboðinu lið með frjálsum fjárframlögum.
Banki: 521-26-1420
Kennitala: 170363-2139

Scroll to Top